Flaug á einkaþotu í jólafrí með syninum

Tom Cruise fór í heitara loftslag yfir jólin.
Tom Cruise fór í heitara loftslag yfir jólin. AFP

Hollywoodstjarnan Tom Cruise tók sér frí frá tökum í lok síðustu viku og byrjaði jólafrí sitt. Hinn 58 ára gamli Cruise er sagður ætla að verja jólunum með syni sínum Connor. Hann flaug frá London á einkaþotu sinni. 

Leikarinn kýs heitara loftslag en er að finna í London á þessum árstíma. Á vef Daily Mail er leikarinn sagður hafa flogið með einkaþotu til Dúbaí þar sem hann mun fagna jólunum með hinum 25 ára Connor sem Cruise á með leikkonunni Nicole Kidman. 

Cruise á þrjú börn. Börnin Isabelle og Connor ættleiddi hann þegar hann var giftur leikkonunni Nicole Kidman. Cruise fékk forræði yfir börnunum sem voru alin upp í Vísindakirkjunni. Leikarinn á einnig dótturina Surie með Katie Holmes, en hún virðist ætla að vera í New York með móður sinni um jólin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert