Sagður hafa brotið reglur um sóttkví

Pete Davidson.
Pete Davidson. AFP

Saturday Night Live-grínistinn Pete Davidson er sagður hafa brotið sóttkví í Bretlandi um helgina. Davidson flaug til Bretlands frá Bandaríkjunum á fimmtudagskvöld en sást úti með kærustu sinni, Bridgerton-stjörnunni Phoebe Dynevor, á sunnudaginn. 

Davidson hefði átt að vera í sóttkví þangað til á þriðjudag í það minnsta samkvæmt breskum landamærareglum að því er fram kemur á vef Daily Mail. Ferðalangar frá Bandaríkjunum þurfa að vera í tíu daga sóttkví. Hins vegar er hægt að stytta þann tíma í fimm daga að frátöldum komudegi með neikvæðu kórónuveiruprófi. 

Davidson var myndaður við komuna á Heathrow-flugvelli á Englandi á fimmtudaginn. Parið sást úti að ganga á sunnudaginn auk þess sem þau fóru í matvöruverslun á sunnudagsmorgun. Davidson er sagður hafa flogið aftur til New York á mánudaginn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert