Play sendir Drífu sneið í nýrri auglýsingu

Flugfélagið Play birti auglýsinguna á vefmiðlum í dag.
Flugfélagið Play birti auglýsinguna á vefmiðlum í dag. Samsett mynd

Flugfélagið Play skýtur föstum skotum að Drífu Snædal, forseta Alþýðusambands Íslands, í nýrri auglýsingu sem fór í loftið í dag. „Drífa sig út! Með leikreglurnar á hreinu,“ segir í nýrri auglýsingu flugfélagsins sem birtist á netmiðlum eftir hádegi í dag.

Sambandið gagnrýndi flugfélagið í tilkynningu í gær og hvatti Drífa fólk til að sniðganga Play. Í tilkynningunni sagði að flugfélagið ætlaði sér að undirbjóða laun starfsfólks til að halda flugfargjöldum í lágmarki. 

Birgir Jónsson forstjóri Play svaraði ASÍ í tilkynningu í gærkvöldi og sagði ásakanirnar ekki réttar. Misskilningur væri um launamál flugfélagsins. 

Miðasala hófst hjá flugfélaginu í vikunni og er stefnt að því að fyrsta vélin fari í loftið 24. júní.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert