Erlendir áhrifavaldar heillaðir af Íslandi

Yung Karin og Logi Pedro komu fram á tónleikum á …
Yung Karin og Logi Pedro komu fram á tónleikum á vegum Creed Fragrances í náttúru Íslands í gær Skjáskot/Youtube

Breski ilmvatnsframleiðandinn Creed Fragrances blés til tónleika í beinu streymi í gærkvöldi í íslenskri náttúru og var viðburðinn vel auglýstur af erlendum áhrifavöldum í snyrtibransanum.

Ástæðan var kynning á nýjum rakspíra frá Viking-línunni sem fyrirtækið framleiðir og á að vera tákn um þrautseigju og drifkraft í anda víkinga. Hundrað millilítra flaska af rakspíranum kostar 60 þúsund krónur og þið getið fjárfest í ilminum hér.

Skjáskot/Instagram

Á tónleikunum komu fram íslenska tónlistarfólkið Gusgusar, Logi Pedro & Yung Karin og Júníus Meyvant og voru tónleikarnir sýndir í beinni útsendingu í streymi á heimasíðu breska ilmvatnsframleiðandans og á Youtube. Upptaka af tónleikunum fylgir neðst í fréttinni.

Skjáskot/Instagram

Margir erlendir áhrifavaldar auglýstu viðburðinn á Instagram og fengu senda sérútbúna kassa frá Creed Fragrances sem innihélt meðal annars íslenskar vörur en þar var að finna tvo bjóra frá Einstök, mittistösku frá 66°Norður, bræddan ost frá Lava Cheese og súkkulaði frá Omnom.

Skjáskot/Instagram
Skjáskot/Instagram
Skjáskot/Instagram

New York-ljósmyndarinn Alicia Mara var á staðnum og náði æðislegum myndum af viðburðinum.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert