Æskuvinkonur flippa á Suðurlandi

Æskuvinkonurnar María Finnbogadóttir og Ásthildur Ómarsdóttir.
Æskuvinkonurnar María Finnbogadóttir og Ásthildur Ómarsdóttir.

Æskuvinkonurnar María Finnbogadóttir og Ásthildur Ómarsdóttir eru umsjónarmenn glænýrra ferðaþátta sem kallast „Sjá Suðurland“ á N4. Í þáttunum ferðast vinkonurnar á bíl sem hægt er að sofa í og lenda í ýmsum ævintýrum. 

Ásthildur er sjónvarpsáhorfendum á N4 að góðu kunn en hún hefur komið nálægt ýmissi dagskrárgerð á stöðinni á undanförnum árum. Æskuvinkona hennar, María Finnbogadóttir, er atvinnuskíðakona og búsett í Austurríki. Þær stöllur gerðu eftirminnilega ferðaþætti í fyrra fyrir N4 sem hétu „Vá Vestfirðir“ en þá þvældust þær vinkonur um á Go Campers-bíl um Vestfirðina. 

Í nýju þáttunum, Sjá Suðurland, ferðast þær stöllur um Suðurlandið og leita uppi skemmtilega hluti til þess að gera. Á ferðalaginu ögra þær sér á ýmsan máta, fara meðal annars í zipline, á fjórhjól, í svifdrekaflug og skella sér á æfingu hjá einum frægasta krossfittara Íslands, Björgvini Karli Guðmundssyni í Hveragerði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert