Heimsækir upptökustaði kvikmynda

Þetta atriði úr James Bond myndinni No Time to Die …
Þetta atriði úr James Bond myndinni No Time to Die er tekið upp í Gravina í Puglia héraði á Ítalíu. Skjáskot/Instagram

Thomas Duke er einlægur aðdáandi kvikmynda og hefur lagt sig fram um að finna upptökustaði fjölmargra kvikmynda. Hann heldur úti skemmtilegri Instagram síðu @steppingthroughfilm sem getur gefið ferðalöngum hugmyndir um áfangastaði.

„Þessi hugmynd hefur lengið blundað í mér,“ segir Duke í viðtali við BBC. „Ég elska að ferðast og rannsaka nýja staði og tengja það áhuga mínum á kvikmyndum. Ég vil alltaf heimsækja staði úr kvikmyndum sem eru í uppáhaldi hjá mér,“ segir Duke sem hefur heimsótt fjölmarga staði víða um heim.

Peter Parker betur þekktur sem Spiderman gisti á Hotel Carlo …
Peter Parker betur þekktur sem Spiderman gisti á Hotel Carlo IV í Prag. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert