Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað

Pittsburgh-flugvöllur tók vel á móti fyrsta fluginu, meðal annars með …
Pittsburgh-flugvöllur tók vel á móti fyrsta fluginu, meðal annars með íslenskum fánavegg, glæsilegri tertu og ísskúlptúr. Ljósmynd/Icelandair

Icelandair hóf í gær flug til Pittsburgh í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum að því fram kemur í tilkynningu frá félaginu. 

Fyrsta fluginu var fagnað bæði á Keflavíkurflugvelli og við komuna til Pittsburgh. Pittsburgh er sextándi áfangastaður félagsins í Norður-Ameríku og boðið verður upp á fjórar flugferðir í viku til borgarinnar fram til októberloka.

Pittsburgh er önnur stærsta borg Pennsylvaníu. Hún liggur á bökkum þriggja fljóta og er fyrir vikið kölluð borg brúanna. Borgin hefur upp á margt að bjóða, menningu, fagurgræna almenningsgarða, áhugaverðar söguslóðir, útivist og íþróttaviðburði.

Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair, og Sveinbjörn …
Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair, og Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, klipptu á borða á Keflavíkurflugvelli. Ljósmynd/Icelandair

„Pittsburgh er nýjasta viðbótin við okkar öfluga leiðakerfi og sextándi áfangastaðurinn okkar í Norður-Ameríku. Norður-Ameríku-markaður hefur verið mjög sterkur hjá okkur og hafa Bandaríkjamenn fest sig í sessi sem fjölmennastir ferðamanna sem heimsækja Ísland. Pittsburgh-flugið fer vel af stað og er ánægjulegt að sjá að farþegar frá 25 Evrópulöndum hafa bókað flug með okkur til Pittsburgh um Ísland og þaðan hafa farþegar bókað flug til 30 áfangastaða Evrópumegin,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair í tilkynningu. 

„Við á Keflavíkurflugvelli óskum Icelandair til hamingju með nýjasta áfangastað sinn, Pittsburgh, og erum sannfærð um að viðbótin eigi eftir að skila sér margfalt til flugfélagsins og farþega þess. Það er fagnaðarefni í hvert sinn sem nýr áfangastaður bætist við á Keflavíkurflugvelli. Alþjóðasamtök flugvalla, Airport Council International, segja að 10% aukning í flugtengingum auki hagvöxt um 0,5% og það er ekki hvað síst ástæða til að fagna hverri nýrri viðbót okkar öflugu flugfélaga,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, í tilkynningu. 

Farþegar fengu sérstakan glaðning í tilefni af fyrstu flugferðinni.
Farþegar fengu sérstakan glaðning í tilefni af fyrstu flugferðinni. Ljósmynd/Icelandair
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert