Beckham-fegðin bara tvö saman í New York

Harper og David Beckham í New York.
Harper og David Beckham í New York. Skjáskot/Instagram

David Beckham og Harper dóttir hans áttu góðar stundir saman í New York í aðdraganda jólanna.

Beckham feðginin gerðu ýmislegt skemmtilegt og virtust njóta sín vel. Þau fóru meðal annars saman á skauta og upp í turn Rockefeller byggingarinnar og borðuðu risastórar samlokur eins og tíðkast í New York.

Harper sem er 12 ára er yngsta barn Beckham hjónanna en þau eiga einnig þrjá stráka sem eru á aldrinum 18, 21 og 24 ára. Harper nýtur góðs af því að vera yngsta barnið og fær mikinn einkatíma með foreldrum sínum en svo virðist sem Beckham ætli sér að njóta þessa dýrmæta tíma til fulls áður en hún vex úr grasi.

David Beckham hefur oft verið gagnrýndur fyrir að kyssa Harper …
David Beckham hefur oft verið gagnrýndur fyrir að kyssa Harper á munninn. Hér lætur hann kynnina nægja. Skjáskot/Instagram
Feðgin í hæstu hæðum með New York borg í bakgrunni.
Feðgin í hæstu hæðum með New York borg í bakgrunni. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert