Beckham í Mexíkó fjarri fjölskyldunni

Brooklyn og Nicola Peltz Beckham virðast afar ástfangin.
Brooklyn og Nicola Peltz Beckham virðast afar ástfangin. AFP

Brooklyn og Nicola Peltz Beckham hafa notið lífsins að undanförnu á snekkju við strendur Mexíkó. Þrálátur orðrómur hefur verið á kreiki um að Nicola Beckham eigi litla samleið með Beckham fjölskyldunni sem er almennt mjög samrýmd. 

Fögnuðu áramótum með Selenu Gomez

Ungu hjónin hafa verið ófeimin við að birta ástúðlegar myndir af sér úr ferðalaginu á samfélagsmiðlum. 

Þá var söngkonan Selena Gomez einnig með í för. Ef marka má myndirnar þá voru dagarnir áreynslulausir og sólríkir. Öll skemmtu sér vel saman og hefur Gomez talað um þau sem þríeyki.

Engin jólakveðja til Nicolu

Athygli vekur að Brooklyn Beckham heldur upp á jól og áramót fjarri fjölskyldu sinni sem hefur alltaf verið afar náin. Margir telja að það sé vegna þess að Victoriu Beckham og Nicolu kemur ekki vel saman. Nicola varði aðfangadegi með Brooklyn í New York en jóladegi með fjölskyldu sinni í Flórída.

Á jólunum birti Victoria Beckham mynd af fjölskyldunni í jólanáttfötunum og sagðist elska og sakna Brooklyns. Engin jólakveðja var til tengdadótturinnar Nicolu.

Athygli vekur að í athugasemdakerfi Brooklyns Beckhams á Instagram hafa fjölmargir áhyggjur af fjölskyldumálum Beckhams og hvetja hann til þess að laga samband sitt við fjölskyldu sína.

„Ekki gleyma fjölskyldu þinni. Fjölskyldan er alltaf til staðar, maður veit hins vegar aldrei með eiginkonur.“

„Ekki gleyma að hringja heim. Fjölskylda þín elskar þig og saknar.“

View this post on Instagram

A post shared by @brooklynpeltzbeckham




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert