„Íslenska lopapeysan átti ekki séns þarna“

Snæfríður með nýjustu bók sína, Komdu með til Kanarí.
Snæfríður með nýjustu bók sína, Komdu með til Kanarí.

Komdu með til Kanarí er nafn á glænýrri handbók um Gran Canaria. Höfundur bókarinnar, Snæfríður Ingadóttir, hefur margoft heimsótt eyjuna og komist í hann krappan. Meðal annars nánast drepist úr kulda þar yfir jólin.

„Ferðalög mín eru ekki bara á dans á rósum, ekki heldur á Gran Canaria. Miðbik eyjunnar er til dæmis mjög fallegt en um það liggja kræklóttir fjallvegir. Það er erfitt að ferðast um þetta svæði með bílveik börn og í raun er ótrúlegt að við séum ekki komin á svartan lista hjá bílaleigunum á Gran Canaria miðað við hvað ég hef þrifið upp mikla bílælu. Sem betur fer hefur bílveikin þó minnkað eftir því sem börnin eldast,“ segir Snæfríður þegar hún er beðin um að rifja upp eftirminnileg ferðalög til eyjunnar.

Ísköld í fjallahúsi

Fyrsta ferð fjölskyldunnar til Gran Canaria er líka mjög eftirminnileg en þá höfðu þau gert íbúðaskipti í fjallaþorpi á norðurhluta eyjunnar. „Þá þekkti ég eyjuna ekki neitt en hafði komist í kynni við heimafólk sem átti sumarhús í fjallaþorpi sem heitir Zumacal. Þau sögðust aðeins nota húsið á sumrin sem mér fannst fullkomið því ég vildi fara út um jól. Þau reyndu að útskýra að það væri kalt í fjöllunum á þessum tíma en komandi úr snjónum á Akureyri taldi ég það vera lítið mál. Við fjölskyldan værum öllu vön og vorum vel birg af ullarfötum. Húsráðendur höfðu hinsvegar rétt fyrir sér. Um leið og sólin settist varð ískalt í fjöllunum en engin kynding var í húsinu. Kuldinn á Kanarí nístir öðruvísi en á Íslandi því það er svo mikill raki í loftinu. Íslenska lopapeysan átti ekki séns þarna. Það eina sem bjargaði okkur voru sítrónutrén í garðinum en við sötruðum sítrónute til að halda á okkur hita öll jólin. Við getum hlegið að þessu núna en með þrjú lítil börn þá var þetta óþægileg upplifun,“ segir Snæfríður en bendir jafnframt á að það er stór munur á hitastigi uppi í fjöllunum og við sjávarsíðuna.

Stærsta kaktusagarð Evrópu er að finna á Gran Canaria. Snæfríður …
Stærsta kaktusagarð Evrópu er að finna á Gran Canaria. Snæfríður mælir með kaktusasafa en biður fólk að fara varðlega í kringum kaktusa á eyjunni því það er sárt að detta á kaktus.

Blóðug eftir kaktus

Snæfríður á fleiri óhappasögur frá eyjunni í handraðanum. „Þegar ég datt á kaktus í stuttbuxum. Það var ansi sárt og blóðugt. Þó var það ekki eins vont og þegar ég smakkaði kaktusávöxt í fyrsta sinn. Þá fór ekki betur en svo að ég fékk fjölda fíngerðra nála upp í mig. Eiginmaðurinn var heillengi að ná nálunum úr góm og tungu með flísatöng! Gönguferð á GuiGui-ströndina er líka nokkuð eftirminnileg en gönguleiðin er ein frægasta gönguleið eyjunnar. Við fjölskyldan fórum öll í þessa göngu en við höfðum aðeins misreiknað okkur varðandi erfiðleikastigið. Dæturnar voru gjörsamlega búnar á því eftir um 700 metra snarpa hækkun og margra klukkustunda göngu með drungalega kletta á aðra hönd og stóra fugla fljúgandi yfir okkur. Allir lifðu þó ævintýrið af þó sumum hafi fundist þeir við dauðans dyr á tímabili.“ Þrátt fyrir allt þetta ítrekar Snæfríður að eyjan sé yndisleg og í bókinni bendir hún lesendum á allskonar hluti sem gaman er að upplifa á eyjunni, bæði hvað varðar mat og drykk, áhugaverða staði, skemmtilegar gönguleiðir og fjölskylduvæna hluti. Bókin er svipað uppbyggð og handbók hennar um Tenerife sem kom út í fyrra. „Veðurfarið er náttúrlega það sem flestir sækja í en fyrir utan það þá er eyjan ótrúlega fjölbreytt bæði hvað varðar náttúrufegurð og afþreyingu. Barnafjölskyldur hafa úr nógu að velja þarna. Poema del Mar-safnið í Las Palmas er til að mynda flottasta safn sem ég hef farið í. Þvílík veisla fyrir augað. Eins er tækni- og vísindasafnið mjög skemmtilegt, kúrekagarðurinn féll vel í kramið hjá krökkunum sem og klifurgarðurinn Grancaventura.“

Lífleg höfuðborg

Spurð um sinn uppáhaldsstað á eyjunni þá nefnir hún höfuðborgina Las Palmas de G.C. „Þessi borg hefur allt; frábærar baðstrendur, iðandi mannlíf, glæsilegar byggingar, fjölbreyttar verslanir og góða veitingastaði. Ég fæ aldrei leiða á henni og nyrsti hlutinn af Las Canteras-ströndinni finnst mér yndislegur. Pinchos-kvöldin í Vegueta-hverfinu eru líka stórskemmtileg en þá bjóða allir veitingastaðir hverfisins upp á smárétti á eina og hálfa evru og drykki á sama verði. Ég er líka mjög skotin í bæ sem heitir Agaete og er á norðurhluta eyjunnar. Hann er alveg við Agaete-dalinn, sem er einn frjósamasti dalur eyjunnar en þar er t.d. einu kaffiakra Evrópu að finna. Öll húsin í þessum bæ eru hvítmáluð. Það er svo sem ekkert sérstakt að gerast þarna en bærinn hefur samt einhvern sjarma. Ég hef trú á því að ég eigi eftir að búa þarna þegar ég verð gömul, ég á bara eftir að ræða það við eiginmanninn.“

– Hvert ferðu næst?

„Næst fer ég til Tenerife. Við fjölskyldan bjuggum þar allan síðasta vetur og okkur langar til að heimsækja vini okkar á eyjunni og dusta rykið af spænskunni. Ég kann mjög vel við Tenerife en ég er líka hrifin af Gran Canaria. Þessar eyjur eru mjög ólíkar en á sama tíma eru ákveðin líkindi með þeim. Ég myndi segja að báðar hafi þær sinn sjarma og ráðlegg fólki að heimsækja þær báðar og bera saman. Ég er viss um að það tekur ástfóstri við aðra hvora, ef ekki báðar.“

Snæfríður Ingadóttir og Matthías Kristjánsson ásamt dætrum sínum þremur þeim, …
Snæfríður Ingadóttir og Matthías Kristjánsson ásamt dætrum sínum þremur þeim, Ragnheiði, Margréti og Bryndísi.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert