Eldfimur hvolpasveitarbúningur innkallaður

Ljósmynd/Hagkaup

Hagkaup innkallar hvolpasveitarbúning (e. Pow Patrol) þar sem hluti búningsins er úr mjög eldfimu efni og fylgihlutur uppfyllir ekki öryggisstaðla. Varan er því ekki í samræmi við þær kröfur sem settar eru vörum sem þessum. Vill Hagkaup því innkalla fyrrgreindan búning og beinir því til viðskiptavina sinna sem keypt hafa hann að hægt sé að skila honum í næstu Hagkaupsverslun og fá endurgreiðslu.


Hagkaup hefur nú þegar tekið vöruna úr sölu í verslunum sínum.

Nánari upplýsingar samhvæmt RAPEX gagnabanka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert