Langar þig að smíða rúm fyrir barnið þitt?

María Gomez hannaði og smíðaði þetta fallega barnarúm og deilir …
María Gomez hannaði og smíðaði þetta fallega barnarúm og deilir hér aðferðinni með lesendum fjölskyldunnar. mbl.is/einkasafn

María Gomez er ekki bara listakokkur og smekkkona með eindæmum heldur er hún hagleikssmiður. Hún heldur úti lífsstílsblogginu Paz.is og segir þar frá rúmsmíðinni í smáatriðum. Hún fann ekki rúmið sem hún vildi fá fyrir barnið sitt og smíðaði það bara sjálf! Hún segir að smíðin sjálf hafi hvorki verið svo ýkja flókin né tímafrek, en undirbúningurinn að verkinu hafi hinsvegar veri það. En er  það ekki einmitt uppskriftin að vel heppnaðri framkvæmd, góður og nákvæmur undirbúningur þar sem horft er í hvert smáatriði?

Við birtum hér hluta af færslu Maríu um heimasmíðaða rúmið en heildarfærslan er á bloggsíðu Maríu ef einhver skyldi vilja fara að hennar dæmi.

_____________________________________________

Ég held að það sé óhætt að segja að þessi færsla er sú allra erfiðasta sem ég hef nokkurn tímann skrifað. Ekki það að það hafi verið erfitt að smíða rúmið, nei það var frekar fljótgert og auðvelt, en að setja hvert atriði niður á blað og hvernig á að gera rúmið var ekki það auðveldasta.

mbl.is/einkasafn

Ég reyndi þó mitt besta að gera uppskrift af þessu rúmi sem skiljanlegasta svo þið getið nýtt ykkur það og vonandi hent í eitt slíkt. Ég get alla vega lofað ykkur því að rúmið er níðsterkt og Alba hefur sofið eins og engill síðan hún fékk það. Áður var hún iðulega að vakna á nótunni en nú eftir að vera komin í stærra rúm er hún farin að sofa út á morgnana.

Rúmið var ekki flókið í smíði en hvorki ég né Raggi höfðum nokkurn tímann gert svona áður. Við höfðum ekkert okkur til stuðnings nema eina mynd, þessa sem er hér fyrir neðan.

mbl.is/einkasafn

Þar sem myndin gefur engar upplýsingar um mál né stærðir ákváðum við að byrja á að ákveða dýnustærð í rúmið. 70×140 cm er mjög algeng stærð af rúmi fyrir 2-6 ára og því ákváðum við að hafa þá stærð. Næst var svo að ákveða hæðina á rúminu og svo var hvert mál ákveðið eftir smekk og sagað eftir því.

Ég hins vegar skrifaði allt kyrfilega niður og ætla nú að gefa ykkur nákvæman lista yfir það sem þarf í rúmið. Þið ættuð þá að geta gengið beint inn í Bauhaus og tekið það timbur sem ykkur vantar beint af listanum.

Efni

Ég mæli með ef þið viljið spara að kaupa efnið í Bauhaus en þar er  ódýrasta timbrið.

Listi yfir timbur

Rúmið er allt gert úr furu en hana þarf ekki að pússa.

6 m af 21 x 45 mm timbur

4,2 metra af 34 x 45 mm

3 m af 45 x 45 mm

8,4 m af 21 x 95 mm

11,5 m af 34 x 70 mm

5,5 m af 34 x 120 mm

Samtals kostaði timbrið í rúmið 13.600 kr

Listi yfir annað sem þarf í verkið

Tréskrúfur (8 cm og 6 cm)

Styrktarhorn 4 stk (vinklar)

Trélím

2-3 pakka af 8 mm trétöppum

Búkkar (ef vill þarf ekki hægt að nota borð)

Kúttara með vélsög (hægt að leigja)

Skrúfvél

Húsgagnalakk

Lakkpensil

Viðarlitað trésparsl

Sandpappír

Heildarkostnaður í rúmið var um 20.000 kr en ég þurfti ekki að kaupa dýnuna þar sem ég átti eina fyrir og skar hana út í þá stærð sem þurfti.

Málin á rúminu

Innra dýnumál er 70×140 cm

Ytra mál er 76 x 146 cm

hæð 186 cm

hæð frá gólfi 15 cm

mbl.is/einkasafn


Aðferð

Þar sem getur verið erfitt að segja frá því í orðum hvernig rúmið er smíðað brá ég á það ráð að taka myndir af ferlinu og skrifa inn á þær öll mál og hvernig á að saga. Einnig er ég búin að „highlighta“ í story inn á @paz.is instagramminu mínu ferlinu svo gott getur verið að skoða það líka. Getið farið beint inn á það hér.  Það hversu mikið smíðavit ég hef sést kannski best á sumum myndanna hér á eftir þegar ég tala um að saga 45 gráðu horn en merki það í selsíum gráðum haha. Þið bara afsakið það og hlæið vonandi bara að því.

Fyrst er að saga út gaflana á rúminu. Næst er svo að saga fyrir hliðunum og brúninni sem heldur uppi rimlabotninum Sagið út 2 stk í 140 cm lengd af spýtunni sem er 34 x 70 mm og svo aðrar tvær í 140 cm af spýtunum sem eru 3,4 x 120 mm. Hér er mynd af rimlunum sem eru á hliðum rúmsins (athugið ekki rimlabotn).  Sagið út 2 stk í 140 cm af spýtunum sem eru 45 x 45 mm, þær mynda brúnina til að halda rimlabotninum. Næst er svo að búa til botninn. Næst er svo að setja höfða og fótagaflinn saman. Næsta mál á dagskrá er svo að setja hliðarnar saman og síðast er svo að setja allt rúmið saman.

mbl.is/einkasafn

Svo kemur  rimlabotninn ofan í rúmið og ef vill má skúfa hann fastan á brúnirnar eða innri rammann, ég gerði það ekki. Það getur verið að það þurfi ögn að stytta endaspýturnar á rimlabotninum, þar sem vinklarnir/hornstoðirnar eru staðsettar, upp á að þær komist fyrir. Næst sparslaði ég svo með trélituðu sparsli ofan í öll skrúfugöt eða svokölluð pocket holes sem voru sjáanleg og þar sem mér fannst þurfa að sparsla. Svo létt pússaði ég sparslið niður áður en rúmið var lakkað.

Ég hvíttaði rúmið svo með efni sem fæst í Bauhaus og heitir Pinotex Möbel og panellakk í 0,75 ml dós. Blandan sem ég tók er (base FGL/BC) með wTY 0,37 og wW1 18.  Við þurftum tvær umferðir af því og finnst mér útkoman rosa flott. Dýnuna tók ég úr rúmi eldri bróður hennar en hún var 90×200 cm. Það er rosalega auðvelt að skera út svamp með dúkahníf og þar sem hinn eldri bróðir hennar er í 70 x 140 cm rúmi tókum við dýnuna úr því og sníðuðum eftir henni. Svo skárum við út með dúkahníf og úr varð rosalega flott eggjabakka svampdýna í rúmið. Og þá ætti rúmið bara að vera til.

Ég held að það sé óhætt að segja að þetta rúm sé  sterkara en bæði rúmið hans Reynis Leo sem er keypt í Ikea og rúmið hans Mikaels sem er upprunalega úr Baby Sam. Ég get hæglega leggst þar upp í án þess að hafa áhyggjur af því að brjóta það og finnst mér það mikill kostur ef ég vill kúra með henni að lesa bók.

Ég vona svo innilega að einhver þarna úti eigi eftir að geta nýtt sér þetta og smíðað fallegt rúm fyrir barnið sitt. 
___________________________________________
Ítarlega færslu Maríu með myndum af hverju skrefi fyrir sig má finna hér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert