Eva Longoria tilkynnir nafn nýfædds sonar

Eva Longoria skömmu eftir fæðingu sonarins sem nú hefur verið …
Eva Longoria skömmu eftir fæðingu sonarins sem nú hefur verið gefið nafn. Ljósmynd/Skjáskot

Fræga fólkið nýtur meiri hylli fjölmiðla en venjulega fólkið og sama á við um blessuð börnin sem oft fá gríðarlega athygli án þess að hafa afrekað nokkuð sérstakt nema bara að fæðast sem afkomendur fræga fólksins.

Það á svo sannarlega við um ungan son bandarísku leikkonunnar Evu Longoria en hún eignaðist sitt fyrsta barn 43 ára gömul fyrir rúmum tveimur mánuðum. Og nú hefur hún  tilkynnt nafnið á drengnum, en sá stutti heitir, haldið ykkur fast, Santiago Enrique Bastón! Eva gaf færi á forsíðuviðtali og myndum á tímaritinu Hola! sem gefið er út í Bandaríkjunum og víðar en markhópur þess er, eins og nafn tímaritsins gefur til kynna, spænskumælandi fólk í Bandaríkjunum.

„Hérna er hann! Santiago Enrique Bastón veifar heiminum! Gat ekki beðið eftir að deila þessari mynd með ykkur öllum!“ skrifar hin stolta móðir á Instagram. „Þakkir til @usahola og @bernardodoral fyrir að ná þessum fallegu augnablikum með nýfæddum syni mínum! #BabyBaston #HOLAUSA.

Eins og sjá má á á myndinni brosir Eva breitt þar sem hún faðmar son sinn. Hún lítur vissulega glæsilega út og var Eva alveg tilbúin að hrósa því fólki sem hjálpaði henni að líta svo vel út en það var Ken Paves sem sá um hárið, Elan Bongiorno um förðun og Charlene Roxborough sá um fatnað. Svona ljósmyndataka er augljóslega ekki eins til tveggja manna verk.

Viðbrögðin létu ekki á sér standa. „Svo fallegur!!! XXX og fullt af kossum frá okkur öllum skrifaði góð vinkona Longoria, Victoria Beckham, í athugasemdum. Holly Robinson bætti líka við. „Omgggggg Santiago“ sem útleggja mætti „Guuuuuuðminngóður Santiago“.

Búast má við fleiri myndum af litla prinsinum í septemberútgáfu Hola sem gefin verður út í næstu viku.

Eva Longoria hefur reynt að njóta fyrstu viknanna með syninum í einrúmi síðan hann fæddist 19. júní, ásamt eiginmanni sínum Jose Bastón.

Hún hefur þó gefið í skyn að eitthvað spennandi sé í pípunum þótt hún hafi gefið sig eingöngu að móðurhlutverkinu þessar fyrstu vikur eftir fæðingu. „Hópurinn hittist aftur! Ég er enn í fæðingarorlofi og þetta er eina vinnan sem ég sinni. En ég er mjög glöð að sjá teymið mitt aftur. Ken og Elan, þið gerið allt svo skemmtilegt og auðvelt!“ #WorkingMama #3WeeksPostPregnancy, skrifaði Longoria á Instagram fyrir um það bil mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert