„Pabbi þarf naglalakkið sitt“

Á bak við alla vöðvana leynist mjúkur maður en The …
Á bak við alla vöðvana leynist mjúkur maður en The Rock leyfir dóttur sinni að naglalakka sig. AFP

Leikarinn Dwayne Johnson eða The Rock eins og vöðvatröllið er kallað er ekki mjög strangur faðir en hann leyfði Jasmine, tveggja ára dóttur sinni, að naglalakka sig. The Rock birti mynd af dóttur sinni naglalakka sig á Instagram og útskýrði að það hefði verið hennar hugmynd. 

Var leikarinn að reyna að kveðja dóttur sína þar sem hann var á leið í vinnuna. Dóttur hans fannst hann hins vegar þurfa naglalakk áður en hann færi. Eftir að hafa sagt nei einu sinni stóðst hann ekki mátið og leyfði Jasmine að naglalakka sig.

„Já, það er algjörlega rétt hjá þér – pabbi þarf naglalakkið sitt,“ segist The Rock hafa sagt áður en hann settist niður í snyrtingu fyrir vinnu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert