Fanney nýtur lífsins á Tenerife með fjölskyldunni

Fanney Ingvarsdóttir er stödd á Tenerife með fjölskyldunni.
Fanney Ingvarsdóttir er stödd á Tenerife með fjölskyldunni. Skjáskot/Instagram

Það væsir ekki um Fanneyju Ingvarsdóttur, markaðsfulltrúa hjá Bioeffect og fyrrverandi fegurðardrottningu, en hún er um þessar mundir stödd á uppáhaldseyju Íslendinga, paradísareyjunni Tenerife, ásamt fjölskyldu sinni. 

Með Fanneyju er unnusti hennar Teitur Páll Reynisson og börnin þeirra tvö, Kolbrún Anna og Reynir Alex. Þess má geta að fyrsta utanlandsferð Reynis var einmitt til Tenerife í apríl 2021.

Á fimm stjörnu fjölskylduhóteli

Fjölskyldan hefur notið þess að sleikja sólina og skapa skemmtilegar minningar saman, en fáir myndu slá hendinni á móti smá sól og hlýju í febrúar. Fanney hefur verið dugleg að birta töfrandi ferðamyndir af fjölskyldunni úr sólinni og hefur merkt hótelið GF Victoria inn á nokkrar af myndunum. 

GF Victoria er fimm stjörnu hótel á besta stað á Adeje-ströndinni, en þar er fjölbreytt afþreying í boði fyrir gesti á öllum aldri – þar á meðal fjölskyldusvæði og vatnsrennibrautagarður með öldulaug þar sem hægt er að spreyta sig á brimbretti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert