Sætur lítill lygari eignaðist erfingja

Benson komin í mömmuklúbbinn.
Benson komin í mömmuklúbbinn. Samsett mynd

Leikkonan Ashley Benson eignaðist sitt fyrsta barn á dögunum með eiginmanni sínum Brandon Davis. Benson tilkynnti um fæðingu barnsins á Instagram-síðu sinni á fimmtudag, en hún birti mynd af fingrum nýburans og bleiku hjarta. Samkvæmt heimildarmanni Us Weekly þá eignuðust hjónin stúlkubarn.

Er þetta fyrsta barn hinnar 34 ára gömlu leikkonu sem er þekktust fyrir hlutverk sitt í unglingaþáttaröðinni Pretty Little Liars. Benson giftist olíuerfingjanum Davis í laumi undir lok árs 2023.

Leikkonan var í sam­bandi með rapp­ar­an­um G-Eazy á ár­un­um 2020 til 2022, en þar áður var hún með of­ur­fyr­ir­sæt­unni Cara Deleving­ne í tvö ár.

Dav­is, 43 ára, er barna­barn ol­íujöf­urs­ins Mar­vin Dav­is og hef­ur átt í ástar­sam­bönd­um við leik­kon­urn­ar Mischa Bart­on og Drew Barrymore.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert