Ezzi svipti hulunni af föður sínum

Ezzi er mjög vinsæll á samfélagsmiðlum.
Ezzi er mjög vinsæll á samfélagsmiðlum. Samsett mynd

Estefan Leó Haraldsson, betur þekktur sem Ezzi á TikTok, er stórsniðugur, skapandi og afskaplega skemmtilegur ungur maður. Hann hefur byggt upp góðan hóp fylgjenda og er sérlega vinsæll hjá ungdómi landsins. 

Ezzi á ekki langt að sækja sköpunaráhugann og kynnti því fylgjendur sína fyrir föður sínum, listamanninum Haraldi Sigmundssyni, í nýjasta TikTok-myndskeiði sínu. Feðgarnir eru mjög líkir og með svipaðan húmor og virðist sem Haraldur sé á góðri leið með að verða nýjasta TikTok-stjarna landsins. 

Ezzi og Haraldur voru staddir inni á bókasafni þegar þeir tóku upp myndbandið, en Haraldur hoppaði og skoppaði um þegar sonur hans kynnti hann til leiks. 

Haraldur starfar sem myndlistarkennari við Krikaskóla í Mosfellsbæ og voru því margir fylgjendur Ezza sem könnuðust við föður hans og létu vita af því í athugasemdarkerfinu. 

@110ezzi

haha þá vitið þið það!

♬ original sound - Ezzi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert