Brúðkaup aldarinnar í Bollywood

Tilkynnt var á Indlandi í dag að tvær af skærustu kvikmyndastjörnum landsins, leikkonan Aishwarya Rai og leikarinn Abhishek Bachchan, sonur goðsagnarinnar Amitabh Bachchan, hefðu trúlofað sig. Gert er ráð fyrir að brúðkaupið fari fram í febrúar eða apríl.

Bachchan, sem er þrítugur, dró trúlofunarhring á fingur Rai, sem er 33 ára, í athöfn á sunnudag að viðstöddum fjölskyldum sínum. Miklar vangaveltur hafa verið um það í Indlandi á undanförnum mánuðum, að þau Rai og Bachchan væru að draga sig saman en þau hafa alltaf neitað því og aðeins sagst vera góðir vinir.

Orðrómurinn fékk byr undir báða vængi þegar þau heimsóttu musteri í nóvember og komu út með morgunfrúarsveiga um hálsinn en það er til merkis um að hefðbundin trúlofunarathöfn hindúa hafi farið fram.

Í dag hefur verið beðið fyrir hjónaleysunum á bökkum árinnar Ganges í hinni helgu borg Varanasi til að leysa úr hugsanlegum flækjum sem afstaða stjörnumerkja þeirra kann að valda. Hindúar bera jafnan saman stjörnuspár hjónaleysa til að kanna hvernig þau eiga saman og að sögn mun Rai hafa Mars á óheppilegum stað, sem gæti valdið vandræðum í hjónabandinu. Að sögn indverskra stjörnuspekinga gæti svo farið, að sá sem giftist einhverjum með slíka afstöðu Mars deyr ungur.

Rai og Bachchan hafa ásamt ættingjum sínum heimsótt nokkur musteri og beðist fyrir til að vega upp á móti þessarar óheppilegu afstöðu himintunglanna.

Rai er ein af helstu stjörnum Bollywood, kvikmyndahverfisins í Bombay, og hefur m.a. leikið í myndinni Bride and Prejudice, sem sýnd var á vesturlöndum. Hún er fyrrum ungfrú heimur. Bachchan var á síðasta ári kjörinn kynþokkafyllsti Asíubúinn af lesendum bresks dagblaðs.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes