Leikkonan Kirstie Alley hefur lengi átt í vandræðum með aukakílóin en hún hefur nú losnað við 22 kíló og hyggst byrja að leika aftur.
Alley hefur unnið baki brotnu seinustu níu mánuði og misst rúm 20 kíló. Hún kveðst hafa hreyft sig reglulega og borðað hollan mat meðan á átökunum stóð, leiklistin veitti henni innblástur.
„Ég hafði tekið þá ákvörðun að byrja aftur í leiklistinni og ég hugsaði með mér: Hvernig vilt þú líta út sem leikkona? Upphaflega ætlaði ég að missa 13 kíló en þegar ég náði því var ég orkumikil og áköf. Ég vildi halda áfram,“ útskýði Alley í viðtali sem birtist í People magazine.