Íris Hólm Jónsdóttir, Alma Rut Kristjánsdóttir, Friðrik Dór Jónsson og Hera Björk Þórhallsdóttir munu syngja bakraddir í laginu Unbroken með Maríu Ólafsdóttur í Eurovision í maí. Hera Björk verður jafnframt raddþjálfari fyrir hópinn.
Hér má sjá myndbandið við lagið Unbroken.
Lagið verður framlag Íslendinga í keppninni sem fer fram í Vínarborg í seinni hluta maímánaðar næstkomandi.
Myndband við lagið var frumsýnt í Laugarásbíó klukkan 17 síðdegis í dag og verður það einnig sýnt á RÚV klukkan 19:35 í kvöld.
Höfundar lags og texta eru strákarnir úr StopWaitGo, þeir Ásgeir Orri Ásgeirsson, Pálmi Ragnar Ásgeirsson og Sæþór Kristjánsson.