Kvikmyndaleikarinn og umhverfissinninn Leonardo DiCaprio sást í New York um helgina fyrir fyrsta umhverfisvæna formúlukappakstur borgarinnar, „Formula E“. Daily Mail greinir frá þessu.
DiCaprio hefur lengi barist fyrir bættu umhverfi og vakti mikla athygli með heimildarmynd sinni „Before the Flood“ um afleiðingar hlýnunar jarðar. Leikarinn er einn af stærstu fjárfestum kappakstursins.
Leikarinn gekk til liðs við formenn kappakstursins árið 2012 þar sem þessi keppni er miklu umhverfisvænni valkostur en Formúla 1 en bílarnir ganga allir fyrir rafmagni en ekki bensíni.
DiCaprio sagðist hafa fjárfest í kappakstrinum vegna þess að hann heldur að þetta breyti því hvernig fólk hugsar um rafmagnsbíla.
„Mér finnst líka flott að allar keppnirnar eru haldnar í stórborgum,“ bætti leikarinn við. „Stórborgir eru áhyggjuefni. Þær eru verstar fyrir umhverfið og því fleiri rafmagnsbílar á götum borga því betra.“
Fleiri stjörnur mættu sem áhorfendur kappakstursins eins og kvikmyndaframleiðandinn og leikarinn Michael Douglas og kona hans, leikkonan Catherine Zeta-Jones.
A post shared by FORMULA E (@fiaformulae) on Jul 16, 2017 at 8:49pm PDT