Kim Kardashian og Kanye West eignuðust sitt þriðja barn á mánudaginn með hjálp staðgöngumóður. Mikill áhugi er fyrir litla Kardashian-West-barninu en hjónin eru sögð hafa hafnað hundruðum milljóna fyrir myndir af því. Ekki er óalgengt að fræga fólkið selji myndir af brúðkaupum og börnum sínum til fjölmiðla.
TMZ greinir frá því að fjölmörg tímarit og vefsíður hafi boðið í myndir af nýfæddu stúlkunni og upphæðirnar hafi verið á milli tvær og fimm milljónir dollara sem eru um 200 til 500 milljónir íslenskra króna.
Heimildamaður segir að raunveruleikastjarnan og tónlistarmaðurinn hafi aldrei íhugað að taka tilboðunum, það samræmist ekki siðferði þeirra að selja myndir af barninu.
Þau eru meðvituð um að fyrr eða síðar muni myndir af stúlkunni koma fyrir sjónir almennings. Myndir af eldri börnum þeirra, þeim North og Saint, birtust þegar þau voru tveggja mánaða og munu aðdáendur þeirra ef til vill þurfa að bíða þangað til í mars eftir myndum af nýjasta meðlimnum.