Segist ekki eiga í ástarsambandi við Pratt

Olivia Munn segist ekki eiga í sambandi við Chris Pratt.
Olivia Munn segist ekki eiga í sambandi við Chris Pratt. AFP

Leikkonan Olvia Munn sendi leikkonunni Önnu Faris skilaboð þar sem hún segir að það sé ekkert til í því að hún og leikarinn Chris Pratt, fyrrverandi eiginmaður Faris, eigi í ástarsambandi. 

Erlendir slúðurmiðlar byrjuðu að flytja fréttir af sambandi þeirra Munn og Pratts í byrjun janúar. Um helgina voru þau sögð hafa snætt rómantískan kvöldverð eins og mbl.is greindi frá í morgun

Munn segir í skilaboðunum til Faris sem hún birti á Instagram að hún svari vanalega ekki slúðursögum en þar sem hún þekki Faris hafi hún ákveðið að gera það í þetta skiptið. „Ég er viss um að þú veist nú þegar að þetta er ekki satt, eða kannski var þér alveg sama en ég vildi bara segja þér persónulega að þetta er ekki satt,“ skrifaði Munn til Faris. 

Faris svaraði Munn og sagði hana yndislega að senda sér skilaboð og vildi endilega hitta hana aftur sem fyrst.

Anna Faris og Chris Pratt tilkynntu um skilnað sinn í …
Anna Faris og Chris Pratt tilkynntu um skilnað sinn í sumar. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson