Leikkonan Anna Faris opnaði sig í hlaðvarpsþætti sínum, Unqualified, um veikindi sonar síns en þar ræddi hún við spjallþáttastjórnandann Jimmy Kimmel og eiginkonu hans Molly McNeary.
Faris á hinn fimm ára gamla Jack með fyrrverandi eiginmanni sínum, leikaranum Chris Pratt. Jack fæddist tveimur mánuðum fyrir tímann og fylgdu því veikindi og aðgerðir. „Þegar Jack fæddist tveimur mánuðum of snemma varð það rosalegt áfall. Og allt í einu breyttist heimurinn þinn algjörlega,“ sagði Faris.
Women's Health greinir frá því Faris hafi áður greint frá veikindum sonar síns í bókinni Unqalified. Þar greindi hún frá því að læknir hafi tilkynnt þeim Pratt að sonur þeirra væri með heilablæðingu. „Ég var í fullkomnu áfalli. Svo við Chris gerðum það sem við gátum, sem var að haldast í hendur og takast á við þetta saman.“