Svo virðist sem að Meghan Markle og Harry Bretaprins ætli sér að stækka fjölskylduna. Meghan og Harry skoðuðu nýstárlegar barnavörur þegar þau heimsóttu Norður-Írland á föstudaginn.
„Ég er viss um að á einhverjum tímapunkti þurfum við allan pakkann,“ sagði Meghan og benti á barnavörur frá Shnuggle. Stofnandi fyrirtækisins sagði People einnig að Harry hafi sýnt baðinu áhuga.
Áður en að barneignum kemur munu þau Harry og Meghan ganga í hjónaband í maí. Fyrir þann tíma munu þó þau Katrín hertogaynja og Vilhjálmur Bretaprins eignast sitt þriðja barn.