Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds greinir frá því á Twitter-síðu sinni í dag að tónlistin sem hann samdi fyrir lokaseríu Broadchurch sjónvarpsþáttanna hafi verið tilnefndi til bresku BRIT verðlaunanna fyrir klassíska tónlist.
„Svo stoltur að hafa verið hluti af þessu stórkostlega verkefni“ segir Ólafur í færslu sinni. Þá greinir hann frá því að hann muni leika hluta tónlistar sinnar úr þáttunum á væntanlegri tónleikaferð sinni sem hefjist brátt.
My soundtrack for Broadchurch’s final series is nominated for a Classic BRIT award! I’ll be playing some songs from the series on my upcoming tour. Which starts veeery soon. pic.twitter.com/Pu3NRa6Wqa
— Ólafur Arnalds (@OlafurArnalds) May 3, 2018