Pippa Middleton, systir Katrínar hertogaynju af Cambridge, stal senunni í brúðkaupi Harrys og Meghan. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem það gerist. Þegar systir hennar gekk að eiga Vilhjálm prins varð hún heimsfræg fyrir limaburð og klæðaburð. Heimsbyggðin spurði einfaldlega, hver er þessi brúðarmær?
Síðan þá eru liðin sjö ár en í dag mætti hún í undursamlegum kjól frá Alexander McQueen. Það er ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að glökkir ráku augun í stækkandi magasvæði.
Pippa gekk að eiga James Matthews fyrir ári síðan og var veislan haldin með pompi og prakt eins og sagt er.
Pippa og Harry hafa alltaf verið mjög náin og einhvern tímann var því fleygt fram að þau yrðu góð hjón. Þeir sem þekkja til segja að Pippa og Harry hafi aldrei verið neitt annað en vinir. Og að sjálfsögðu bauð hann henni í brúðkaupið, annað væri óeðlilegt.