Hjónin Nicole Kidman og Keith Urban elska að koma fram á rauða dreglinum og setja þá reglulega upp meiri sýningu en önnur pör. Leikkonan og tónlistarmaðurinn eru dugleg að láta vel að hvort öðru opinberlega með tilheyrandi kossum og snertingum.
Yahoo Lifestyle fékk sérfræðinga í líkamstjáningu til þess að rýna í samskipti Kidman og Urban á rauða dreglinum. Miðað við samskiptin vill einn sérfræðingur meina að Kidman sé mjög samúðarfull og sé sú sem stjórni á meðan Urban sé móttækilegur.
Kidman og Urban kyssast ekki bara heldur fylgja þessu innileg faðmlög og leggja þau oft enni sín saman en annar sérfræðingur segir að það fari eftir pörum hvar þau snertist helst. „Sjáðu hvað ég á,“ segir hann að Kidman segi með því að snerta Urban svo innilega á rauða dreglinum. „Henni finnst hann vera það myndarlegasta í heimi og þykir vænt um hinn,“ segir hann og segir þetta ekki vera bara sýningu heldur raunverulega ást.