Ofurfyrirsætan Elle Macpherson er þekkt fyrir að hugsa einstaklega vel um heilsuna. Fyrirsætan sem skildi í fyrra er komin með nýjan kærasta og hefur að sjálfsögðu skipað honum að taka lífstílinn í gegn.
Daily Mail greinir frá því að Macpherson sem er 54 ára sé að hitta umdeildan breskan lækni að nafni Andrew Wakefield. Wakefield sem er 61 árs fór frá eiginkonu sinni í fyrra líkt og Macpherson en hann hitti fyrirsætuna á læknaráðstefnu í nóvember í fyrra.
Megrunin hefur skilað árangri og er Wakefield sagður hafa grennst eftir að hann hætti að borða uppáhaldsmat sinn og fór að borða næringarríka hollustuhristinga. Er hann einnig búinn að skipta út gömlu fötunum fyrir nýrri og flottari föt.