Grét í 45 daga í röð

Jada Pinkett Smith er búin að vera gift Will Smith …
Jada Pinkett Smith er búin að vera gift Will Smith í yfir tvo áratugi. mbl.is/AFP

Jada Pinkett Smith og Will Smith hafa verið gift í 21 ár og lítur hjónabandið út fyrir að vera mjög hamingjusamt. Leikarahjónin hafa þó gengið í gegnum ýmislegt síðustu tvo áratugi eins og fram kemur í Facebook-þætti Pinkett Smith. 

Will Smith var gestur eiginkonu sinnar að þessu sinni. Upplýsti hann meðal annars að eiginkona sín hefði grátið 45 daga í röð en hann segist hafa haldið dagbók utan um það. Skildi hann ekki af hverju þar sem honum fannst líf þeirra vera fullkomið. Hann var að byggja hús handa fjölskyldunni og fannst hann vera að gera allt fyrir fjölskylduna, í rauninni var hann þó að gera það fyrir sig. 

Leikarinn segir að hann hafi verið ánægður með hvernig fólk sá hann, samband þeirra og fjölskyldu. Börnin tóku meira að segja eftir þessum leik Smith og sagði þá hin níu ára gamla Willow Smith að faðir þeirra hefði mynd af fjölskyldu í huga en það væru ekki þau. 

Í þættingum kemur einnig fram að hjónin hafi ákváðið að gifta sig þegar Pinkett Smith var ólétt af þeirra fyrsta barni. Pinkett Smith vildi þó aldrei gifta sig og vildi ekki brúðkaupið heldur en móðir hennar þrýsti á hana. Að lokum grét hún alla leið upp að altarinu. 

Jada Pinkett Smith og Will Smith.
Jada Pinkett Smith og Will Smith. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes