Kim Kardashian var beðin um að lýsa því hvernig ýmislegt í lífi hennar lyktaði í viðtali við The Cut. Þegar hún lýsti lyktinni af eiginmanni sínum virtist hún frekar vera lýsa bankainnistæðunni.
„Ríkur. Ég get ekki útskýrt það, en eins og rík manneskja,“ sagði Kardashian og hló og hélt áfram og reyndi að líkja lyktinni við peninga. „Hann ilmar eins og þú myndir halda að mjög dýr Saint Laurent-ilmavatnsherferð ilmaði.“
Kardashian var ekki bara beðin um að lýsa lyktinni af eiginmanni sínum heldur líka ástarsorg sem hún sagði að lyktaði eins og áfengi og eftirsjá sem hún líkti við McDonalds. Sjálf segist hún lykta vel.