Rauður bær í bláu landi

Grímur Hákonarson leikstjóri.
Grímur Hákonarson leikstjóri. Haraldur Jónasson/Hari

Sýningar hefjast í dag í Bíó Paradís á heimildarmynd Gríms Hákonarsonar, Litla Moskva, sem var frumsýnd á Skjaldborgarhátíðinni í maí. Í henni fjallar Grímur um Neskaupstað og segir svo um myndina á vef kvikmyndahússins: „Á tímum kalda stríðsins komust íslenskir sósíalistar sjaldan til áhrifa í stjórnmálum. Landinu var stjórnað af hægri- og miðjuflokkum sem hölluðu sér til vesturs; við vorum í NATÓ og með bandaríska herstöð í Keflavík. Það var aðeins einn staður á landinu sem sósíalistar réðu; Neskaupstaður. Þeir komust til valda árið 1946 og stýrðu bænum í 52 ár.“

Grímur kláraði myndina snemma á þessu ári en hann byrjaði að vinna að henni fyrir fimm árum. „Svo gerði ég Hrúta sem gekk rosalega vel þannig að þessi mynd fór í biðstöðu í tvö ár, á meðan ég var að fylgja Hrútum eftir,“ segir Grímur.

Merkilegt tímabil

Grímur segist í myndinni fjalla um Neskaupstað allt frá þeim tíma er sósíalistar voru við völd í bænum til samtímans. Hann segir þetta sósíalistatímabil Neskaupstaðar merkilegt þar sem í miðju kalda stríðinu hafi bærinn verið sá eini á landinu þar sem sósíalistar réðu ríkjum. Í myndinni sé líka fjallað um þær breytingar sem áttu sér stað eftir að því tímabili lauk.

„Síldarvinnslan, aðalútgerðarfyrirtæki bæjarins, var sameign bæjarbúa á tímum sósíalistanna. Í dag er það í meirihlutaeigu Samherja og bæjarbúar hafa misst völdin yfir fyrirtækinu,“ nefnir Grímur sem dæmi um þá breytingu sem orðið hafi á stjórnarháttum í bænum.

Af öðrum breytingum nefnir hann að bærinn hafi verið sameinaður öðrum bæjarfélögum þegar Fjarðabyggð varð til og þannig tapað að hluta til sjálfstæði sínu. „Síðan eru það Norðfjarðargöng, þau rjúfa þessa einangrun sem bærinn var alltaf í,“ bætir Grímur við. Þetta séu hinar þrjár stóru breytur.

Stilla úr Litlu Moskvu.
Stilla úr Litlu Moskvu.

Sett í ákveðinn búning

Grímur segir sósíalistana hafa verið kosna aftur og aftur, á fjögurra ára fresti, allt frá árinu 1946. „Í rauninni fellur aldrei sósíalisminn heldur var ákveðið að sameinast þessum nágrannabæjum og þá breytist auðvitað þetta pólitíska litróf því í þeim bæjum voru aðrir flokkar sterkir,“ segir Grímur.

– Tekurðu afstöðu í myndinni eða er hún algjörlega hlutlaus gagnvart umfjöllunarefninu?

„Nei, ég myndi nú ekki segja að ég sé að taka afstöðu en ég set hana í ákveðinn búning. Ég læt viðmælendurna segja söguna og þar takast á ólík sjónarmið sem skapa ákveðna togstreitu og gefa myndinni dýpt. Sumir sakna gamla tímans og finnst allt hafa verið betra á tíma sósíalismans og öðrum finnst allt í fína lagi í dag,“ svarar Grímur. „En auðvitað er ég höfundur myndarinnar og það er mitt stílbragð á henni. Ég hafði áhuga á að segja sögu af mönnum sem höfðu fallega hugsjón og vildu breyta samfélaginu en hlutirnir fóru kannski ekki alveg eins og þeir vildu.“

– Ertu frá Neskaupstað?

„Nei, ég er ekki þaðan en ég man eftir því þegar ég var krakki að fylgjast með kosningasjónvarpinu að þá var alltaf talað um þennan rauða bæ fyrir austan. Reykjavík var stjórnað af Sjálfstæðisflokknum og mestallt landið var blátt en alltaf var talað um rauða bæinn,“ svarar Grímur.

Fyrir nokkrum árum hafi hann leitt hugann á ný að Neskaupstað og því að ekkert hafi verið fjallað um bæinn í kvikmyndum. Í forvitni hafi hann farið þangað og byrjað að kynna sér málin. „Mér fannst þetta áhugaverður efniviður í heimildarmynd og ég er að sjálfsögðu vinstrimaður, er ekkert að leyna því. Ég er nógu gamall til að hafa verið meðlimur í Alþýðubandalaginu áður en það var lagt niður,“ segir Grímur kíminn, „þannig að jú, jú, einhvers konar áhugi á sósíalisma og sagnfræði er líka til staðar hjá mér.“

Þríleikur um bændauppreisnir

Grímur gerði það gott með Hrútum, sópaði að sér kvikmyndaverðlaunum víða um lönd og hefur nú nýlokið við að klippa næstu leiknu kvikmynd, Héraðið, sem verður frumsýnd á næsta ári. Líkt og Hrútar er sögusviðið íslensk sveit. „Það má eiginlega segja að ég sé að klára þríleik um bændauppreisnir,“ segir Grímur sposkur, „fyrst kom heimildarmyndin Hvellur sem fjallaði um Laxárdeiluna, svo Hrútar og Héraðið fjallar líka um bændauppreisn. Aðalpersónan er kona sem fer í uppreisn gegn kaupfélagi sem öllu ræður í litlu samfélagi.“

– Lagðirðu upp með það strax í byrjun að gera þríleik?

„Nei, þetta gerðist meira óvart. Þetta hljómar bara svo vel,“ segir Grímur og hlær við.

Arndís Hrönn Eyjólfsdóttir fer með aðalhlutverkið í Héraðinu og segist Grímur að mestu hafa unnið að myndinni með sama fólki og hann vann með að Hrútum.

Kvikmyndin var tekin upp á Erpsstöðum í Dölum og á Hvammstanga og segir Grímur að hún sé töluvert ólík Hrútum. „Hún fjallar um nútímabændur og aðalpersónan er kona. Myndin er líka mun pólitískari en Hrútar. Þetta er samfélagsádeila,“ útskýrir Grímur, „en það er dálítil tenging milli Litlu Moskvu og Héraðsins að því leyti að þær eru báðar um pólitísk og efnahagsleg veldi í litlum samfélögum.“

Hrútar í Ástralíu og Suður-Kóreu

Fyrir fáeinum vikum bárust fréttir að utan af því að tökur væru hafnar á ástralskri kvikmynd sem byggð væri á Hrútum og að með aðalhlutverkin færu þekktir leikarar, Michael Caton og Sam Neill. „Við seldum réttinn að myndinni og ég fékk að lesa handritið o.s.frv. en hafði enga aðkomu að því. Grunnsagan er sú sama en þeir eru búnir að breyta ansi miklu og þá m.a. til að staðfæra myndina. Það er ekki hægt að hafa stórhríð þarna þannig að þeir eru með skógarelda í staðinn,“ segir Grímur um myndina sem nefnist Rams á ensku.

Grímur segir Hrúta hafa gengið vel í Ástralíu, aðsókn verið góð að myndinni sem hafi orðið kveikjan að endurgerðinni. „Ég myndi segja að það væri aðeins búið að poppa hana upp,“ segir Grímur um muninn á kvikmyndunum. „Það er fyrst og fremst heiður að einhverjir í Ástralíu vilji eyða tíma og orku í að gera mynd eftir handritinu sem ég skrifaði,“ segir hann að lokum og bætir við að einnig standi til að endurgera Hrúta í Suður-Kóreu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt að setjast niður og gera þér grein fyrir því, hvað það er sem þú raunverulega sækist eftir í lífinu. Leitaðu upplýsinga um það sem þú þarft að fá að vita.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt að setjast niður og gera þér grein fyrir því, hvað það er sem þú raunverulega sækist eftir í lífinu. Leitaðu upplýsinga um það sem þú þarft að fá að vita.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav