Tónlistarmaðurinn Zayn Malik ræddi ferilinn og einkalífið í viðtali við breska Vogue á dögunum. Malik virðist staðfesta það að tónlistarkonan Taylor Swift láti bera sig á milli staða í ferðatöskum en Malik og Swift unnu saman að lagi sem kom út í lok ársins 2016.
„Hún ferðaðist um í ferðatösku,“ sagði Malik um getu Swift til þess að forðast ágenga götuljósmyndara en sjálfur hefur hann fengið að finna fyrir þeim.
Taylor Swift has reportedly been carried out of her house in this massive suitcase https://t.co/iIeamTRfFM pic.twitter.com/bdmZyIKIsB
— SPIN 1038 (@spin1038) July 17, 2017
Í fyrra birtust fréttir af því að Swift hefði verið borin út í bíl innilokuð í ferðatösku. Undir mynd frá fréttastofunni Slpas News stóð: „Taylor Swift hefur að sögn verið flutt í ferðatösku frá íbúð sinni í sendiferðabíl. Heill hellingur af bílum var fyrir utan íbúð hennar og fleiri en 12 öryggisverðir voru viðstaddir þennan flutning. Taylor Swift hefur ekki sést í langan tíma.“