Knattspyrnumaðurinn Ragnar Sigurðsson birti mynd af sér á Instagram í gær með nýrri kærustu. Svart hjarta undir myndinni gefur í skyn að um sé að ræða nýja ást í lífi kappans sem hefur ekki sést með Ragnheiði Theodórsdóttur lengi.
Samkvæmt Þjóðskrá er Ragnar enn formlega kvæntur Ragnheiði en kemur fram að hjónin séu ekki í samvistum. Er Ragnheiður auk þess skráð til heimilis í íbúð í Garðabæ sem skráð er á þau bæði.
Visir greindi frá því að nýja ástin í lífi Ragnars sé rússnesk og heiti Alena.
Mikil ánægja er með mynd Ragnars á Instagram og hafa yfir 4.500 manns líkað við myndina.
View this post on InstagramA post shared by Ragnar Sigurðsson (@sykurson) on Nov 15, 2018 at 9:15am PST