Segir Díönu hafa verið bestu vinkonu sína

Díana prinsessa og Sarah Ferguson voru svilkonur og bestu vinkonur.
Díana prinsessa og Sarah Ferguson voru svilkonur og bestu vinkonur. Samsett mynd

Sarah Ferguson eða Fergie eins og hún er kölluð segir í viðtali við Daily Mail að Díana prinsessa hafi verið besta vinkona sín. Báðar eiga þær það sameiginlegt að hafa skilið við syni Eísabetu Bretadrottningar. 

Fergie talar þó vel um barnsföður sinn og fyrrverandi eiginmann Andrés prins nú þegar 22 ár eru síðan þau skildu og önnur dóttir þeirra búin að gifta sig. Lýsir hún þeim sem bestu fráskildu hjónum í heimi. 

Hún segist hafa hugsað um látna vini og ættingja þegar dóttir hennar Eugiene gekk í hjónaband í október. 

„Díana var besta vinkona mín og fyndnasta manneskja sem ég þekkti. Hún hafði svo góða tímasetningu og skopskyn. Það var eintóm gleði að vera með henni af því hún hló og naut lífsins svo mikið, ég er viss um að hún hefði elskað brúðkaupið.“

Sarah Ferguson og Beatrice prinsessa af York.
Sarah Ferguson og Beatrice prinsessa af York. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes