Eddie Murphy stóra ástin, ekki Fjölnir

Eddie Murphy á stærri stað í hjarta Mel B en …
Eddie Murphy á stærri stað í hjarta Mel B en Fjölnir Þorgeirsson. Samsett mynd

Fyrrverandi tengdadóttir Íslands, Kryddpían Mel B, segir leikarann Eddie Murphy vera stóru ástina í lífi sínu. Mel B ræddi sjálfsævisögu sína í þættinum Good Morning Britain og minntist ekkert á Fjölni okkar Þorgeirsson þegar hún lýsti nákvæmlega kynnum sínum af stóru ástinni í lífi sínu. 

„Hann verður það alltaf,“ sagði Mel B en stjörnurnar eiga 11 ára gamla dóttur saman og heimtaði Murphy DNA-próf til þess að staðfesta faðernið. Segir hún marga hafa ranghugmyndir um samband þeirra. Þó svo mikið hafi gengið á talar hún fallega um hann núna og sagði dóttur sína vera hjá föður sínum. 

Mel B var beðin um að lýsa því hvernig hún og Eddie Murphy kynntust. 

„Ég fór í matarboð heim til hans og það var mjög djúp tenging og ég fór reyndar af því þetta var allt of mikið. En hann er svo yndisleg manneskja, fjölskyldan skiptir hann öllu og hann er mjög kursteis og gamaldags,“ sagði söngkonan. Hún sagði einnig að þau hefðu verið að hittast í ágætistíma áður en fólk frétti það. 

Mel B vildi ekki ganga svo langt að óska þess að hún væri enn með Eddie Murphy þar sem hann á konu og á von á sínu tíunda barni. Mel B giftist Stephen Belafonte eftir stutt samband við Murphy en sagði skilið við hann fyrir tveimur árum. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson