Klessti bleikan Range Rover

Katie Price hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarið.
Katie Price hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarið.

Fyrrverandi glamúrfyrirsætan Katie Price hefur verið ákærð fyrir að keyra bíl undir áhrifum áfengis. Samvkæmt frétt BBC þarf fyrirsætan fyrrverandi að mæta fyrir dóm 7. janúar. Atvikið átti sér stað í London fyrir tveimur mánuðum.

Daily Mail greinir frá því að Price hafi klesst bleikan Range Rover sem hún á. Var hún handtekin í október eftir fimm daga fyllerí sem endaði á því að hún klessti bleika jeppann. Fyrr um kvöldið mætti hún óbeðin í afmæli manns sem hún hefur verið sundur og saman með. 

Árið 2018 hefur verið erfitt fyrir stjörnuna sem sleit aftur sambandi sínu við eiginmann sinn, Kieran Hayler, í sumar. Í febrúar fékk hún sex mánaða akstursbann og í haust hafa birst fréttir um gjaldþrot hennar. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson