Sjónvarp Símans hóf í vikunni sýningar á spennuþáttunum Escape at Dannemora sem byggðir eru á sönnum atburðum. Árið 2015 struku tveir dæmdir morðingjar úr fangelsi í New York-ríki í Bandaríkjunum og nutu við það aðstoðar konu sem starfaði í fangelsinu.
Stórskotalið leikara kemur fram í þáttunum en aðalhlutverkin eru í höndum Benicio del Toro, Patriciu Arquette og Paul Dano.
Þættirnir hafa fallið í frjóa jörð hjá gagnrýnendum en ekki eru þó allir sáttir. Þannig hefur konan sem hjálpaði föngunum að strjúka, Joyce Mitchell, kallað leikstjórann Ben Stiller hraðlyginn tíkarson.
„Honum er slétt sama um sannleikann. Vill bara græða milljónir á mér. Hann er fábjáni.“