One Direction-stjarnan fyrrverandi, Liam Payne, sást á dögunum á stefnumóti með engri annarri en ofurfyrirsætunni Naomi Campbell. Þau sáust bakdyramegin eftir tónleika í O2 Arena í London á sunnudagskvöldið, þar sem þeim var fylgt af öryggisvörðum út í bíl.
Campbell hefur þó nokkur ár á Payne, en hún verður 49 ára á árinu en hann 26 ára. Sögusagnir hafa verið á kreiki um samband þeirra en þetta er í fyrsta skipti sem þau sjást saman á stefnumóti. Payne var áður í sambandi með söngkonunni Cheryl Fernandez-Versini sem er tíu árum eldri en hann. Þau hættu saman síðasta sumar.
#Video | @LiamPayne with @NaomiCampbell in london yesterday pic.twitter.com/NmwB6wnsl7
— Liam & Zayn News (@TheZiamNews) January 28, 2019