Vinkonurnar Jennifer Aniston og Courtney Cox voru á leið til Mexíkó um helgina þegar einkaflugvél þeirra þurfti að nauðlenda í Kaliforníu. TMZ greinir frá atvikinu en vél þeirra á að hafa misst hjól eða dekk við flugtak í Los Angeles.
Vegna þess hversu mikið eldsneyti var á vélinni þegar ákveðið var að lenda á flugvelli í Suður-Kaliforníu neyddist flugstjórinn til þess að fljúga um í dágóðan tíma áður en hann lenti vélinni. Eftir að vélin lenti loks fóru konurnar í aðra vél sem fór með þær til Mexíkó.
Aniston varð fimmtug í síðustu viku og ferðin til Mexíkó á að hafa komið Aniston á óvart. Ásamt þeim Aniston og Cox í vélinni voru fleiri vinkonur þeirra, eiginkona Jimmy Kimmel, Molly Kimmel, og eiginkona leikarans Jason Bateman, Amanda Anka.