Ekki hætt að sitja fyrir nakin 53 ára

Fyrirsætan Cindy Crawford er enn að.
Fyrirsætan Cindy Crawford er enn að. mbl.is/AFP

Fyrirsætan Cindy Crawford er 53 ára en alls ekki hætt að sitja fyrir nakin. Í nýju viðtali við Net-a-Porter segist hún einna helst sjá eftir því að hafa ekki verið alveg nakin þegar hún sat fyrir í Playboy þegar hún var yngri. 

„Á hvaða aldri er ekki fallegt að vera nakin lengur?“ segist Crawford hafa hugsað þegar hún ákvað að sitja fyrir nakin í bók nýlega og vangaveltur út frá þessari spurningu var ástæðan fyrir því að hún sló til. Crawford segist vilja finnast hún falleg án klæða í sínu einkalífi með eiginmanni sínum og ljósmyndarinn hafi einmitt fangað mynd af alvörukonu. 

„Er síðasti söludagsmiði á okkur? Ég lít ekki eins út og þegar ég var tvítug, þrítug eða jafnvel fertug. Ef við hugsum vel um okkur, af hverju ekki?“

„Ég er ekki að verða yngri. Svo ég vil fagna því hver ég er í dag,“ sagði fyrirsætan. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson