Adele hefur skilið við eiginmann sinn Simon Konecki. Þetta staðfesta að aðstoðarmenn söngkonunnar.
Í yfirlýsingu sem var gefin út í gær kemur fram að þau muni halda áfram að ala upp son sinn í sameiningu af mikilli ástúð, að því er BBC greinir frá.
Adele, sem er þrítug, ól soninn Angelo árið 2012. Hún giftist Konecki árið 2016 eftir að þau höfðu verið saman í fimm ár.
Söngkonan heimsfræga er þekkt fyrir plöturnar 19, 21 og 25 sem hafa notið mikilla vinsælda.
Adele minntist í fyrsta sinn á hjónabandið opinberlega þegar hún tók á móti Grammy-verðlaununum árið 2017 og þakkaði eiginmanni sínum.
Adele splits from husband Simon Konecki after nine years together https://t.co/M9jQoay9Yf
— Sky News (@SkyNews) April 20, 2019
There's a fire starting in our heart with the news of Adele and her husband Simon Konecki's split. 💔 https://t.co/nKvX3ttXlq pic.twitter.com/z0yxMwMe8f
— E! News (@enews) April 20, 2019