Hingað til hafa sunnudagsmessur Kanye West verið einkasamkvæmi en í gær messaði hann yfir þúsundum tónleikagesta á Coachella-hátíðinni í samnefndum dal í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Um er að ræða eins konar gjörning, þar sem hann flytur bæði eigin lög og annarra, með fulltingi fjölmargra listamanna, hljómsveitar og dansara.
View this post on InstagramSight and sounds of an incredible day. // 📷: @coachella
A post shared by AEG (@aegworldwide) on Apr 21, 2019 at 9:37pm PDT
Síðustu sunnudaga hefur Kanye verið að halda sunnudagsmessur en þær hafa verið fyrir vini og fjölskyldu. Nú mætti hann á Coachella þar sem þúsundir fengu að fylgjast með. Stemningin minnti á bandaríska gospelkóra en vitaskuld með framsæknu handbragði West. Að hann skyldi koma þarna fram ku vera liður í því að hann sé að reyna að ávinna sér virðingu margra aðdáenda sinna til baka. Hann hefur ekki átt sjö dagana sæla.
View this post on InstagramA post shared by The Culture Feed (@theculture_feed) on Apr 21, 2019 at 2:49pm PDT
Nýja lagið sem hann flutti hét Water og hluta af því er að finna í þessu myndbandi: