Leikarinn Johnny Depp segir að fyrrverandi eiginkona hans, leikkonan Amber Heard, hafi látið mála á sig áverka áður en hún fór fyrir dómstóla til að fá nálgunarbann.
Depp segir að myndbönd úr eftirlitsmyndavélum sýni að hún hafi ekki verið með áverkana næstu daga eftir að hún fór í dómshúsið.
Depp stendur nú í meiðyrðamáli gegn Heard en hún hefur talað opinskátt um það ofbeldi sem hann beitti hana á meðan þau voru gift. Hann segir að hann hafi aldrei lagt hendur á hana, en hún hafi hins vegar beitt hann ofbeldi.
Lögmaður Heard, Eric George, segir í tilkynningu að staðreyndirnar tali sínu máli og að Depp hafi lagt ítrekað hendur á Heard. Hann segir tilraunir Depp til að bjarga feril sínum vera örvæntingarfullar og plati engan.