Cooper senn á lausu?

Samband Coopers og Shayk hangir á bláþræði.
Samband Coopers og Shayk hangir á bláþræði. AFP

Samkvæmt heimildum Page Six hangir samband leikarans Bradley Coppers og fyrirsætunnar Irinu Shayk á bláþræði þessa dagana. 

Parið hefur verið saman frá árinu 2015 og eiga þau eina dóttur saman sem kom í heiminn árið 2017. Samkvæmt heimildarmanni Page Six er hvorugt þeirra hamingjusamt, en þau eru enn saman vegna dóttur sinnar. 

Aðdáendur Coopers hafa spáð og spekúlerað í ástarmálum hans síðustu mánuði, eða frá því að hann og tónlistarkonan Lady Gaga komu fram á Óskarsverðlaunahátíðinni og sungu lagið Shallow saman. Lady Gaga blés á allar sögusagnir um að þau væru í ástarsambandi og sagði að þau hafi verið að leika, enda sungu þau eldheitt ástarlag saman. 

Tónlistarkonan Lady Gaga er einhleyp um þessar mundir en hún sleit trúlofun sinni við Christian Carino í febrúar síðastliðinn. Það er því spurning hvort aðdáendur kvikmyndarinnar A Star Is Born fái drauma sína uppfyllta og Cooper og Lady Gaga taki saman á endanum.

Lady Gaga og Bradley Cooper.
Lady Gaga og Bradley Cooper. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson