Leikkonan Jennifer Lawrence sagði í hlaðvarpsþættinum Naked with Catt Sadler að hún hefði brostið í grát þegar engin vinkona hennar komst í gæsapartíið hennar.
Lawrence trúlofaðist Cooke Maroney í febrúar síðastliðnum og ákvað í kjölfarið að hún vildi endilega halda gæsapartí. Hún hafði áður sagt að hún þyrfti ekkert endilega að halda slíkt partí. Hún segist varla kannast við þá manneskju sem hún varð í kringum brúðkaupsundirbúninginn og því hafi það komið sér á óvart þegar hún fór að gráta yfir gæsapartíinu. „Ég var bara: „Ég veit ekki einu sinni af hverju ég er að gráta. Ég vissi ekki einu sinni að ég vildi halda gæsapartí,““ sagði Lawrence í þættinum.
Hún segist hafa vitað að Maroney væri sá eini rétti um leið og vildi strax giftast honum og vera með honum að eilífu. Hún segist of löt til að vera smámunasöm í undirbúningi fyrir brúðkaupið. „Ég sá kjól sem ég varð hrifin af og sagði: „Þetta er kjóllinn.“ Síðan sá ég sal og fannst hann flottur og þá vorum við komin með sal,“ sagði Lawrence.