Pabbi Eminem látinn

Pabbi Eminem er látinn.
Pabbi Eminem er látinn. AFP

Marshall Bruce Mathers yngri, faðir rapparans Eminem er látinn 67 ára að aldri. Eminem, eða Marshall Bruce Mathers III, rappaði oft um pabba sinn, en hann yfirgaf hann og móður hans þegar hann var ungabarn.

Samkvæmt heimildum TMZ var banamein Mathers yngri, sem kallaður var Bruce, hjartaáfall.

Samkvæmt Debbie, móður rapparans, giftist hún faðir hans þegar hún var aðeins 15 ára gömul. Bruce var þá 22 ára gamall. Þau voru saman í tvö ár eftir brúðkaupið en skildu rétt eftir fæðingu Eminem. Debbie varð eftir í Detroit með soninn en Bruce fluttist til Kaliforníu og átti tvö börn þar. 

Eminem hefur aldrei falið reiði sína í garð föðr síns og í lögum eins og „My Name Is“ og „Cleanin' Out My Closet“ má bersýnilega greina þær tilfinningar. 

Hann hefur sagt í viðtölum í gegnum árin að hann hafi skrifað bréf til pabba síns þegar hann var krakki en pabbi hans sendi þau alltaf til baka. 

Árið 2001 birti Bruce opinbert bréf til sonar síns í dagblaði og útskýrði sína hlið á málinu. Hann sagði móður Eminem hafa haldið sér í burtu frá honum. Eminem hafði samt sem áður aldrei samband við hann til að sættast.



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes