Óperuhúsið í Los Angeles hyggst rannsaka ásakanir um kynferðislega áreitni á hendur óperusöngvaranum Placido Domingo.
Níu konur hafa stigið fram og sagt frá kynferðislegri áreitni sem þær sættu um áratugaskeið af hálfu óperusöngvarans.
Domingo er einn virtasti og valdamesti söngvari óperuheimsins. Ferill hans hefur verið afar farsæll, ekki síst sem einn af tenórunum þremur en í seinni tíð hefur hann gegnt stöðu aðalframkvæmdastjóra óperuhússins í Los Angeles.
Fram kemur í tilkynningu frá óperuhúsinu að leitað verði til utanaðkomandi ráðgjafa við rannsókn á ásökununum.
AP-fréttaveitan greindi frá ásökunum kvennanna fyrr í dag. Rætt er við átta söngkonur og einn dansara sem saka Domingo um áreitni. Atvikin sem um ræðir áttu sér stað yfir um þriggja áratuga skeið allt frá upphafi níunda áratugar síðustu aldar. Segir AP hegðun söngvarans hafa verið vel þekkt leyndarmál innan óperuheimsins.
Ekki kemur fram í tilkynningu óperuhússins hvort Domingo muni áfram gegna stöðu aðalframkvæmdastjóra við óperuhúsið.