Reeves snýr aftur í Matrix 4

Keanu Reeves mun endurtaka hlutverk sitt sem Neo í fjórðu …
Keanu Reeves mun endurtaka hlutverk sitt sem Neo í fjórðu Matrix-myndinni. AFP

Keanu Reeves mun snúa aftur sem Neo í fjórðu Matrix-myndinni sem er í undirbúningi. Kvikmyndaverið Warner Bros tilkynnti þetta í dag. Lana Wachowski skrifar handritið, leikstýrir og framleiðir.

Þessi vinsæli kvikmyndabálkur hefur halað inn meira en 1,6 milljarða dala víðs vegar um heiminn. Þriðja myndin kom út árið 2003 en tuttugu ár eru á þessu ári liðin frá því fyrsta myndin sló í gegn.

„Við gætum ekki verið ánægðari með að endurvekja The Matrix með Lönu,“ sagði forstjóri kvikmyndaversins, Toby Emmerich, í yfirlýsingu.

„Lana er sannkölluð hugsjónamanneskja – hún er einstæður og frumlegur kvikmyndagerðarmaður.“

Lana og systir hennar Lilly, sem áður kölluðu sig Wachowski-bræður, Andy og Larry, áður en þær fóru í kynleiðréttingu, leikstýrðu fyrstu þremur myndunum.

Ekkert kom fram í tilkynningunni hvenær nýja myndin verður frumsýnd eða um hvað hún fjallar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson