Stjörnurnar verja Harry og Meghan

Meghan og Harry hafa verið gagnrýnd fyrir óumhverfisvænan ferðamáta sinn …
Meghan og Harry hafa verið gagnrýnd fyrir óumhverfisvænan ferðamáta sinn í sumar. mbl.is/AFP

Hertogahjónin Harry og Meghan hafa verið í kastljósi fjölmiðla undfarna daga fyrir einkaþotuferðir sínar. Nú hafa stjörnur víða um heim stigið fram og reynt að verja hjónin og er þar Elton John fremstur í flokki en hann viðurkenndi að hafa borgað fyrir flug þeirra til Nice í Frakklandi í síðustu viku. 

Tónlistarmaðurinn greindi frá því í færslu á Instagram að honum bæri skylda til þess að passa upp á Harry og fjölskyldu hans vegna Díönu prinsessu sem var ein besta vinkona hans. Hann og eiginmaður hans ákváðu að bjóða hjónunum og Archie litla í frí á heimili þeirra í Nice. Öryggis þeirra vegna flugu þau með einkaþotu sem Elton John borgaði fyrir en hann segist hafa kolefnisjafnað flugið. 

Elton John er góður vinur Harry og Meghan.
Elton John er góður vinur Harry og Meghan. mbl.is/AFP

Spjallþáttastjórnandinn Ellen DeGeneres ákvað einnig að segja sína skoðun á málinu á samfélagsmiðlum. Segjast hún og eiginkona hennar hafa hitt Harry og Meghan á Englandi og talað við þau um náttúruvernd. Lýsir hún hjónunum sem samúðarfullu jarðbundnu fólki. „Ímyndið ykkur að það sé ráðist á ykkur fyrir allt sem þið gerið þegar það eina sem þið eruð að reyna að gera er að gera heiminn betri,“ skrifaði DeGeneres um hjónin í lokin. 

Ellen DeGeneres.
Ellen DeGeneres. mbl.is/AFP

Söngkonan Pink segir í tísti sínu að hún sé ánægð með að fólk verji hertogahjónin. Hún segir að Meghan sé lögð í einelti. Hvetur hún fólk til þess að koma betur fram við hana. 

Söngkonan Pink segir Meghan lagða í einelti.
Söngkonan Pink segir Meghan lagða í einelti. mbl.is/AFP

Erlendir fjölmiðlar hafa verið duglegir að fjalla um ferðamáta hertogahjónanna allt frá því Harry talaði á loftslagsráðstefnu á vegum Google á Sikiley. Í byrjun ágúst eru hjónin talin hafa farið á einkaþotu til Ibiza í tæpa viku og í síðustu viku fóru þau á einkaþotu til Nice í Frakklandi í nokkra daga. 



View this post on Instagram

I am deeply distressed by today’s distorted and malicious account in the press surrounding the Duke and Duchess of Sussex’s private stay at my home in Nice last week. Prince Harry’s Mother, Diana Princess Of Wales was one of my dearest friends. I feel a profound sense of obligation to protect Harry and his family from the unnecessary press intrusion that contributed to Diana’s untimely death. After a hectic year continuing their hard work and dedication to charity, David and I wanted the young family to have a private holiday inside the safety and tranquility of our home. To maintain a high level of much-needed protection, we provided them with a private jet flight. To support Prince Harry’s commitment to the environment, we ensured their flight was carbon neutral, by making the appropriate contribution to Carbon Footprint™ I highly respect and applaud both Harry and Meghan’s commitment to charity and I’m calling on the press to cease these relentless and untrue assassinations on their character that are spuriously crafted on an almost daily basis.

A post shared by Elton John (@eltonjohn) on Aug 19, 2019 at 8:39am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson